AFTANSÖNGUR - VESPER
27.mars 2026 -27.mars 2026
Klukkan:
17:00

AFTANSÖNGUR - VESPER
Hallgrímskirkja
Föstudagur 27. mars 2026 kl. 17:00
Tíðagjörð á sér fornar rætur í trúariðkun Gyðingdóms og kristni. Það er reglubundin bænagjörð sem byggir á Davíðssálmum og öðrum biblíulegum lofsöngvum og lestrum úr ritningunni.
Hér á landi hefur tíðagjörðin verið þekkt alla tíð. Í klaustrum, dómkirkjum og höfuðkirkjum. Eftir siðbót var tíðasöngur sunginn á biskupsstólum og latínuskólunum. Smám saman komu þó rímaðir sálmar við alþýðleg lög í stað lofsöngva biblíunnar.
Í tíðasöng heyrum við eins og nið aldannna, enduróm af bænum og söngvum kynslóðanna. Aftansöngur á aðfangadag og á gamlárskvöld er hluti af þessari arfleifð.
Prestur: Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
Sönghópurinn Cantores Islandiae syngur
Stjórnandi: Ágúst Ingi Ágústsson
Organisti: Björn Steinar Sólbergsson
Ókeypis aðgangur og öll hjartanlega velkomin
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR Í REYKJAVÍK
--ENGLISH--
VESPER
Hallgrímskirkja
Friday 27th of Mars 2026 at 17 hrs.
Vespers have deep roots in the religious practices of both Judaism and Christianity. It is a structured form of prayer built on the Psalms of David, along with other biblical hymns and readings from Scripture.
Priest: Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
Cantores Islandiae sings
Conductor: Ágúst Ingi Ágústsson
Organist: Björn Steinar Sólbergsson
Free entrance and everyone is welcome
HALLGRÍMSKIRKJA – YOUR PLACE IN REYKJAVÍK